395px

El Silencio Exterior, La Calma Interior

Helfró

Þögnin Ytra, Kyrrðin Innra

Inni í huga mínum glymur skaðræði af skærum hljóðum
Geygvænlegir klettar berja vítisklukku
Glymjandi sem ærir hvern sem heyrir svo hann líður vítiskvalir
Bergmálið af skarkala í mannsins veröld

Hljóð
Hvað fær þaggað óm af mennskum hroka
Gef mér grið

Þögn
Hlífðu mér við jarðríkisins klið
Veit mér innri frið
þrá mín eftir friðsæld er sem grettistak á þjáðu sjálfi mínu
Knýjandi þörf verður nauðsyn
Djöfulgang skal undiroka með djöfullegum ráðum
Með kaldlyndi skal ég hann kæfa

Hljóð
Hver andardráttur nístir í mín eyru
Gef mér grið

Þögn
Í vígamóð ég færi í nyt mitt bjargráð
Veit mér innri frið
Þögnin ytra, Kyrrðin innra
Ég mun þagga niður í þeim látum sem kvelja vitund mína
Hendur mínar munu ausa blóði
Ég mun ekki staldra við þó harmakvein um heiminn allann hljómi
þögn sem fylgir eftir verður himinfengleg

Hljóð
Hvert fótatak á grundu er sem sprenging
Gef mér grið

Þögn
Hvert hvísl á mennskum vörum hrópar ögrun
Veit mér innri frið
Í léttleika og gleði brýt ég bein og sný í sælu sundur sinar
Vínrauðir vessar vökva fold og sanda
Er fárveikt mannkyn liggur afskipt sem hráviði á láði og legi
þögnin gerir mér að lokum kleift að anda

Hljóð
Loksins lygnir inni í mínu höfði
Gef mér grið

Þögn
Hinn mennski vírus gekk um dauðans hlið
Veit mér innri frið

El Silencio Exterior, La Calma Interior

Dentro de mi mente resuena el estruendo de sonidos agudos
Rocas imponentes golpean la campana del castigo
Retumbando como si alterara a quien escucha, así sufre el tormento
El eco del bullicio en el mundo del hombre

Sonido
¿Qué provoca el eco ahogado del orgullo humano?
Dame refugio

Silencio
Protégeme del murmullo del mundo terrenal
Dame paz interior
Mi anhelo de tranquilidad es como un grito en mi atormentado ser
Una necesidad apremiante se vuelve esencial
El demonio será sometido con astucias infernales
Con frialdad lo ahogaré

Sonido
Cada respiración hiere mis oídos
Dame refugio

Silencio
Con espíritu combativo usaré mi recurso
Dame paz interior
El silencio exterior, la calma interior
Silenciaré los ruidos que atormentan mi conciencia
Mis manos derramarán sangre
No me detendré aunque el lamento suene por todo el mundo
El silencio que sigue será celestial

Sonido
Cada paso en el suelo es como una explosión
Dame refugio

Silencio
Cada susurro en labios humanos grita desafío
Dame paz interior
Con ligereza y alegría romperé huesos y desgarraré tendones
Vasos de vino tinto riegan la tierra y las arenas
Mientras la humanidad enferma yace desatendida como despojos en la tierra
El silencio finalmente me permitirá respirar

Sonido
Finalmente se calma dentro de mi cabeza
Dame refugio

Silencio
El virus humano caminó por la puerta de la muerte
Dame paz interior

Escrita por: Ragnar S