Traðkandi Blómin í Eigin Hjartagarði
Helfró
Í undirbúningi fyrir þann voveiglega atburð
Sem mér finnst ég hafa verið falið að fremja
Reynist mér nauðsynlegt að ganga gegn náttúrulegum
Innbyggðum og innrættum viðhorfum
Ég lít á þau sem kvilla, sjúkleg einkenni af ógeðslegri innanskömm
Sem kölluð er mannúð og samkennd
Meðaumkun, sníkjudýr í vitund minni
Sem ég verð að útrýma
Svo hún fái ekki hindrað minn illa ásetning
Ég velti mér upp úr harmleik og mannvonsku
Ég dæli í mig eitri og áfengi
Ég neita mér um svefn og mannlega nánd
Ég geri allt sem þörf krefur til að grafa
Ljósið inni í mér eins djúpt og ég get
Þegar ég finn ei lengur neitt
Tilfinningalaust villidýr
Get ég loksins gengið á vit örlaga með þeim óheppnu
Sem verða á mínum vegi er blóði skal úthellt



Comentarios
Envía preguntas, explicaciones y curiosidades sobre la letra
Forma parte de esta comunidad
Haz preguntas sobre idiomas, interactúa con más fans de Helfró y explora más allá de las letras.
Conoce a Letras AcademyRevisa nuestra guía de uso para hacer comentarios.
¿Enviar a la central de preguntas?
Tus preguntas podrán ser contestadas por profesores y alumnos de la plataforma.
Comprende mejor con esta clase: