visualizaciones de letras 1.093

Narfa ég hitti er nóttin var liðin
Niflheimahliðin
Kom hann í hnakki á kolsvörtum fola
Kólnaði gola

Starði á okkur með stingandi augum
Staðurinn umkringdur vofum og draugum
ÞRek hans var búið og hugrekkið brostið
Beit okkur frostið

Loki vill buga legg þinn og hug
Lítið því duga vopn og vörn
Hlusti nú hver sem heyrir í mér
Hættuleg eru Loka börn

Hann þekkir staðinn sem hrímar og frystir
Hel er hans systir
Sagði að núna hann vildi mig vara
Við því að fara

Niður til hennar sem Niflheimi stjórnar
Neyðir og pyntar og sveltir og fórnar
Bráðum ég myndi svo bágindum mæta
Brynhildi græta

Lævís og slyng þau læðast í hring
Lokka þig kringum Bæjartjörn
Hlusti nú hver sem heyrir í mér
Hættuleg eru Loka börn

Vilja úr leyni vinna þér mein
Villindýr reynast hefnigjörn
Hlusti nú hver sem heyrir í mér
Hættuleg er Loka börn

ÞIg vilja hryggja, þau eru stygg
ÞAgna mun Frigg og fölna Hörn
Hlusti nú hver sem heyrir í mér
Hættuleg er Loka börn

Loki vill buga legg þinn og hug
Lítið því duga vopn og vörn
Hlusti nú hver sem heyrir í mér
Hættuleg eru Loka börn

Por Vikingur


Comentarios

Envía preguntas, explicaciones y curiosidades sobre la letra

0 / 500

Forma parte  de esta comunidad 

Haz preguntas sobre idiomas, interactúa con más fans de Skálmöld y explora más allá de las letras.

Conoce a Letras Academy

¿Enviar a la central de preguntas?

Tus preguntas podrán ser contestadas por profesores y alumnos de la plataforma.

Comprende mejor con esta clase:

0 / 500

Opciones de selección