visualizaciones de letras 692

Niðavellir

Skálmöld

Niðavellir, náhvítur máninn skín
Dvergahellir, dulúð þér villir sýn
Sindradætur, synir og börnin öll

vetrarnætur, verma þau klettafjöll

Aðrir byggja hús og hallir, kastala og kofa
Komið inn í hellinn því að hér, hér er gott að sofa

Galdrastafir, grafnir í stóran stein
dvergagrafir, dysjar og gömul bein
Heljarstyrkur, hertekur djúpan dal
Niðamyrkur, nær inn í gullinn sal

Leggist niður börnin mín, já, stór er okkar stofa
Steingólfið er tandurhreint og hér, hér er gott að sofa

Trónir á mergi tinnugler
tindar úr bergi háir
Sindri og Hergill halla sér
hér sofa dvergar gráir

Heyr, mín kæra hefðarfrú
hér er gott að sofa
Á sig taka náðir nú
niðahjón og börnin þrjú

Þegar heyrist þrumugnýr
Þór við skulum lofa
Okkur geymir hellir hlýr
hér er gott að sofa

Náinn syngur næturljóð
núna sefur dvergaþjóð

Escrita por: Baldur Ragnarsson / Björgvin Sigurðsson / Gunnar Ben / Jón Geir Jóhannsson / Snæbjörn Ragnarsson / Þráinn Árni Baldvinsson. ¿Los datos están equivocados? Avísanos.

Comentarios

Envía preguntas, explicaciones y curiosidades sobre la letra

0 / 500

Forma parte  de esta comunidad 

Haz preguntas sobre idiomas, interactúa con más fans de Skálmöld y explora más allá de las letras.

Conoce a Letras Academy

¿Enviar a la central de preguntas?

Tus preguntas podrán ser contestadas por profesores y alumnos de la plataforma.

Comprende mejor con esta clase:

0 / 500

Opciones de selección