Sex Augu, Tólf Stjörnur
Wormlust
Sex augu, tólf stjörnur
Með himinþokur milli fingra sér
Sveipaður myrkri og harmi
Drukknandi augu synda yfir það sem fyrir ber
Leifar fjarlægra drauma finnast undir isilögðum sjáöldrum
Berjast þær sýnir um að komast upp a yfirborðið
Vaki þú hyldýpi óskylt takmörkunum holdsins
Leyf okkur að hvíla í faðmi þinum
Að þekkja ásjónu vítislogana
Allar þessar óteljandi tennur
ÞÍnar sálhreinsandi hvítu klær
Klórandi
Fálmandi
Eftir hlutdeild í tilveru utan líkama
Sú óendandi þjáning
Hve við þráum að þekkja form hennar
Að samtvinnast greipum logans
Yfirstíga eðju holdsins
Að svífa
Fuðra upp
Enda
Eilíft líf
Bjögun hins illlýsanlega sjálfs
Orðin eru bitur lofsöngur
Og munnur okkar fullur af glerbrotum
Án andgiftar
Gleyptar hafa verið ófáar tennurnar
Ódauðleg prísund umlykjandi
Aðgangur að djúpunum; hylling
Vonarglætan kæfð
Brenni þeir útlimir ófærir um að slá frá sér
Rotni það hold af beinum sem getur ei brunnið
Megi þessir tónar sveipa af hulunni
þEtta verk hreinsa burt sköpunarverkið
Megi uppljómum tendrast í hugum allra
Megi allt sem er
Vera ei meir
Hent inn í óseðjandi hreinsunareldinn
Ráðgáturnar leystar og dauðinn eina frelsunarorðið
Frelsuð frá tilveru
Andinn dreginn á brott
Við sjáum pyttinn
Ginnungargap ofar öllum skilningarvitum
Líkama kaffærða í óyfirstíganlegum refsingum
Endi allra ferðalaga
Við heyrum sársaukaópin
ÞÆr fjarlægu raddir sem klifra upp hallarsalina
Við lifum í draumaheim
Sársaukinn vekur ei
Fingur titra, augun grípa í tómt
Litir renna saman í eitt
Móðan smýgur sér í öll vit
Við erum bundinn í dróma
Klædd sólinni
Himneskum eldi
Engin leið út



Comentarios
Envía preguntas, explicaciones y curiosidades sobre la letra
Forma parte de esta comunidad
Haz preguntas sobre idiomas, interactúa con más fans de Wormlust y explora más allá de las letras.
Conoce a Letras AcademyRevisa nuestra guía de uso para hacer comentarios.
¿Enviar a la central de preguntas?
Tus preguntas podrán ser contestadas por profesores y alumnos de la plataforma.
Comprende mejor con esta clase: